Paracetamol stílar
Notkun
- Verkjastillandi; höfuðverkur, tannverkur, tíðaverkur.
- Til hitalækkunar.
Verkun:
Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Verkjastillandi verkun þess byggist á áhrifum á heilann og á vefi, þar sem verkurinn á upptök sín. Hitalækkandi verkun lyfsins byggist á áhrifum á hypothalamus. Lyfið ertir ekki magaslímhúð og hefur ekki áhrif á storknun blóðsins né blæðingartíma.

Frábendingar:
Ofnæmi fyrir Paracetamol eða Acetominophen. Lyfið má ekki nota, ef um lifrasjúkdóma er að ræða.

Aukaverkanir:
Ofnæmi svo sem húðútbrotum hefur verið lýst. Blóðflagnafæð og fækkun hvítra blóðkorna hefur örsjaldan verið lýst. Bloðlýsublóðleysi getur komið fyrir. Langvarandi notkun lyfsins getur hugsanlega valdið nýrnaskemmdum.

Ofskömmtun:
Lifrabólga. Einkenni eitrunar eru ógleði, uppköst, lystarleysi og magaverkir. Truflun á lifraprófum kemur fram eftir 12-48 klst.

Skammtar:
Skammtastærðir handa fullorðnum, Endaþarmsstílar 500 mg:
Ekki ætlaðir börnum 12 ára og yngri.
1 - 2 stílar á 4 - 6 klst. fresti mest 4 sinnum á sólahring.
Max 4000 mg/24klst.

Börn:
-
Skammtastærðir handa börnum 60 mg:
Um 3 mán./5 kg, 1 stíll á 4-6 klst. fresti mest 4 sinnum á sólahring
Max 240mg/24 klst.
Um 1árs/10 kg. 2 stílar á 4-6 klst. fresti mest 4 sinnum á sólahring
Max 480 mg/24klst. -
Skammtastærðir handa börnum 125 mg:
Ekki ætlað börnum yngri en 1 árs:
Um 1 árs/10 kg, 1 stíll á 4-6 klst. fresti mest 4 sinnum á sólahring
Max 500 mg/24 klst.
Um 5 ára/20 kg, 2 stílar á 4-6 klst. fresti mest 4 sinnum á sólahring
Max 1000 mg/24 klst. -
Skammtastærðir handa börnum 250 mg:
Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára:
Um 3-7 ára 15-25 kg, 1 stíll á 4-6 klst. fresti mest 4 sinnum á sólahring
Max 1000 mg/24 klst.
Um 7-12 ára 25-40 kg, 1-2 stílar á 4-6 klst. fresti mest 4 sinnum á sólahring
Max 2000 mg/24 klst.