Paracetamol
Notkun
- Verkjastilling vena miðlungs verki vegna áverka eða veikinda.
- Til hitalækkunar.
Verkun:
Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Verkjastillandi verkun þess byggist á áhrifum á heilann og á vefi, þar sem verkurinn á upptök sín. Hitalækkandi verkun lyfsins byggist á áhrifum á hypothalamus. Lyfið ertir ekki magaslímhúð og hefur ekki áhrif á storknun blóðsins né blæðingartíma.

Frábendingar:
Ofnæmi fyrir Paracetamol eða Acetaminophen. Lyfið má ekki nota, ef um lifrasjúkdóma er að ræða.

Varúð:
Gætið sérstaklega vel að því að skammtar séu réttir, sérstaklega vegna misskilnings vegna mg annars vegar og mL hins vegar. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum sem þjást af vessaþurrð.
Ef sjúklingur hefur fengið paracetamol í einhverju formi síðustu klukkustundir, þá þarf að huga mjög vel að hversu langt er frá síðustu inntöku og í hvaða skammti. Heildarskammtur á hverjum sólahring á ekki að fara yfir ráðlagt hámark.

Aukaverkanir:
Ofnæmi svo sem húðútbrotum hefur verið lýst. Blóðflagnafæð og fækkun hvítra blóðkorna hefur örsjaldan verið lýst. Blóðlýsubloðleysi getur komið fyrir. LAngvarandi notkun lyfsins getur hugsanlega valdið nýrnaskemmdum.

Skammtar
Skammtar eru ákvarðaðir eftir þyngd og gefnir á a.m.k. 15 mínútum í bláæð.

- Yfir 50 kg: 1000mg eða 100ml, ekki meira en 4g á 24 klst.
- 33kg - 50kg: 15 mg/kg eða 1,5 ml/kg, ekki meira en 60mg/kg eða 3g á 24 klst.
- 10kg - 33kg: 15 mg/kg eða 1,5 ml/kg, ekki meira en 60mg/kg eða 2g á 24 klst.
- Undir 10 kg: 7,5 mg/kg eða 0,75 ml/kg, ekki meira en 30 mg/kg á 24 klst. Þynnið í sprautu með 1 hluta lyfi á móti 9 hlutum NaCl 0,9% eða 5% glucosa. Gefið hægt á 15 mín. Ekki geyma lausnina lengur en 1 klst frá blöndun.