Fentanyl
Leptanal®
Stungulyf, 50 míkrog/mL, 100 mcg í 2mL amp.
Stungulyf, 50 míkrog/mL, 100 mcg í 2mL amp.
Notkun
- Verkjastilling
- Samhliða notkunar með sefandi lyfi við sefunarverkjadeyfingu af flokki II hjá fullorðnum.
Verkun:
Fentanyl er kröftugt verkjastillandi lyf sem er ætlað til notkunar við í meðallagi langar og langar skurðaðgerðir. Fentanyl í stórum skömmtum viðheldur stöðugri hjartastarfsemi og dregur úr streitutengdum hormónabreytingum.
Verkjastillandi áhrif 100 míkróg (2 ml) skammts jafngilda áhrifum 10 mg af Morfíni.
Eftir inndælingu Leptanal í bláæð kemur verkun fljótt fram. Hámarks verkjastillandi áhrif koma yfirleitt fram eftir 3-5 mínútur og á sama tíma kemur öndunarbæling fram.
Verkunarlengd eftir allt að 100 míkróg stakan skammt í bláæð er um 30 mínútur.
Verkjastillingin er skammtaháð og hægt er að laga hana að sársaukastigi skurðaðgerðarinnar.

Frábendingar:
Ofnæmi fyrir virka efninu eða öðrum ópíóðum.
Ofnæmi fyrir virka efninu eða öðrum ópíóðum.
Aukaverkanir:
-
Mjög algengar (>10):
Meltingarfæri: ógleði, uppköst.
Stoðkerfi: vöðvastífleiki. -
Algengar (>100):
Taugakerfi: hreyfingartregða, slæving, sundl.
Augu: sjóntruflanir.
Hjarta: hægsláttur, hraðtaktur, hjartsláttartruflun.
Æðar: lágþrýstingur, háþrýstingur, æðaverkir.
Öndunarfæri: raddbandakrampi, berkjukrampar, öndunarstopp.
Húð: ofnæmishúðbólga.
Áverkar og eitranir: ruglun eftir aðgerð, taugafylgikvilli við svæfingu. -
Sjaldgæfar (>1.000):
Geðræn vandamál: vellíðunarkennd.
Taugakerfi: höfuðverkur.
Æðar: bláæðarbólga, blóðþrýstingsflökt.
Meltingarfæri: kyngingarörðugleikar.
Almennt: skjálfti, lágur líkamshiti.
Áverkar og eitranir: fylgikvillar í öndunarvegi við svæfingu, æsingur eftir aðgerð, fylgikvillar við meðhöndlun. -
Tíðni ekki þekkt:
Ónæmiskerfi: ofnæmi (t.d. bráðaofnæmislost, bráðaofnæmisviðbrögð, ofsakláði).
Geðræn vandamál: óráð.
Taugakerfi: krampar, meðvitundarleysi, vöðvakrampar.
Öndunarfæri: öndunarbæling.
Húð: kláði
Alemnnt: lyfjafráhvarfsheilkenni.
Skammtar
- Gjöf með stökum skammti: 25 til 100 míkróg (eða 0,5 til 10 míkróg/kg).
- Samfellt innrennsli: 0,5 til 5 míkróg/kg/klst
- Sem lyfjaforgjöf má gefa 1-2 ml af Leptanal (sem jafngildir 50-100 míkrógrömmum af fentanýli) í vöðva 45 mínútum fyrir innleiðslu svæfingar.
Börn:
Börn á aldrinum 12 til 17 ára: sömu skammtar og fyrir fullorðna.
Hjá börnum sem anda sjálf má aðeins nota lyfið til verkjastillingar í tengslum við svæfingu eða sem hluta af róandi/verkjastillandi meðferð. Þetta verður að gera af reyndu starfsfólki við aðstæður þar sem mögulegt er að bregðast við skyndilegri stífni í brjóstkassa sem kallar á barkaþræðingu, eða við öndunarstoppi sem kallar á öndunarhjálp.
⚕️ SérlyfjaskráBörn á aldrinum 12 til 17 ára: sömu skammtar og fyrir fullorðna.