Sjúkrabíll

Morphine

Morfín®
Stungulyf, 10 mg/mL, 10 mg í ampullu.
Notkun
  1. Verkjastilling, m.a. vegna blóðþurrðar í hjarta.
  2. Meðferð hjartabilunar með lungnabjúg.
Verkun:
Morfín er sterkt verkjalyf af flokki ópíóða. Verkjaáhrif byggja að hluta til á breyttri verkjaupplifun og hækkun verkjaþröskulds. Verkun morfíns stafar af áhrifum þess á mörg svæði í miðtaugakerfi. Verkunin er kröftugri hjá öldruðum. Önnur áhrif morfíns á miðtaugakerfi eru öndunarbæling, geðræn einkenni, ógleði og uppköst, þvengd sjáöldur ásamt aukinni seytingu ADH, sem dregur úr þvagútskilnaði. Það verkar hamlandi á heilastúku, skynjunarsvæði heilabarkar og öndunar- og hóstastöðvar. Það örvar hings vegar svæðið sem stjórnar uppköstum. Morfín eykur virkni sléttra vöðva sérstaklega hringvöðva í meltingarvegi. Meðal geðrænna einkenna eru vímuáhrif en einnig deyfð og svefn-, einbeitingar-, og minniserfiðleikar. Örvun dópamínviðtaka í mænukylfu getur valdið ógleði og uppköstum.
Frábendingar:
Ofnæmi. Minnkuð meðvitund og öndunarslæving. Varlega í krónískum lungnasjúkdómum. Varlega í sjúklingum með krampasögu (morfín getur lækkað krampaþröskuld)
Aukaverkanir:
Slæving, öndunarslæving (skammtaháð), lækkaður blóðþrýstingur, ógleði/uppköst.
Skammtar
Fullorðnir:
  1. Verkjastilling: 2,5-15,0 mg i.v / 2,5-20,0 mg i.m/s.c
  2. Hjartabilun: 2,5-5,0 mg (0,05-0,1 mg/kg) i.v
Börn:
  1. Verkjastilling: 0,1 mg/kg i.v/i.m/s.c
  2. Hjartabilun: 0,05-0,1 mg/kg i.v
Verkar < 1min i.v, á 1-5 min i.m, og 15-30 min s.c. Eykur slævandi áhrif annara lyfja, þ.a.l. ætti að nota minni skammta. Minnka skammta hjá öldruðum. Naloxone er