Sjúkrabíll

Ondansetron

Ondasnetron Fresenius Kabi® / Zofran®
Stungulyf, 2 mg/ml, 4 mg í hettuglasi.
Notkun
  1. Meðferð við ógleði og uppköstum.
  2. Fyrirbyggjandi meðferð við ógleði og uppköstum.
Verkun:
Lyf við uppköstum og lyf við ógleði, serótónín-5-HT3 -blokkar.
Frábendingar:
Samhliðanotkun apómorfíns. Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefna (natríumklóríð, natríumsítrattvíhýdrat, sítrónusýrueinhýdrat).
Ekki má nota ondansetron á fyrsta þriðjungi meðgöngu.
Aukaverkanir:
Mjög algengar (>1/10)
  • Taugakerfi: höfuðverkur.
Algengar (>1/100)
  • Æðar: hitatilfinning eða andlitsroði.
  • Meltingarfæri: hægðartregða.
Sjaldgæfar (>1/1.000)
  • Taugakerfi: flog, erfiðleikar við hreyfingar (þ.m.t. utanstrýtuaviðbrögð eins og truflun á vöðvaspennu, augnvöðvakreppa og hreyfibilun)
  • Hjarta: hjartsláttartruflanir, brjóstverkur með eða án ST-lækkunar, hægtaktur, lágþrýstingur.
Mjög sjaldgæfar (>1/10.000)
  • Ónæmiskerfi: skyndileg og stundum alvarleg ofnæmisviðbrögð, þ.m.t. bráðaofnæmi.
  • Taugakerfi: sundl við hraða gjöf í bláæð.
  • Augu: tímabundnar sjóntruflanir (t.d. þokusýn), aðallega meðan á gjöf í bláæð stendur.
  • Hjarta: QTc lenging (m.a. Torsade de Pointes)
Koma örsjaldan fyrir (<1/10.000)
  • Augu: tímabundin blinda, aðallega meðan á gjöf í bláæð stendur.
  • Húð: eitrunarhúðútbrot (þ.m.t. húðþekjudrepslos).
Tíðni ekki þekkt:
  • Hjartavöðvablóðþurrð.
Skammtar
Ráðlagður skammtur við staðfestri ógleði og uppköstum er stakur 4 mg skammtur gefinn með hægri inndælingu á minnst 30 sekúndum.
Ekki má gefa stakan skammt stærri en 16 mg vegna hættu á skammtaháðri QT lengingu.
>75 ára, upphafsskammtur má ekki vera stærri en 8 mg.
Börn 6 m:
Ondansetron Fresenius Kabi á að gefa sem stakan 0,15 mg/kg skammt í bláæð rétt fyrir krabbameinslyfjameðferð. Stakur skammtur í bláæð má ekki vera stærri en 8 mg.
Allt að 3 skammtar, 0,15 mg/kg í bláæð á 4 klst. fresti.
⚕️ Sérlyfjaskrá