Sjúkrabíll

Xylocain

Xylocain® / Lidocain
Stungulyf, 20 mg/ml, 400 mg í hettuglasi.
Notkun
Staðdeyfing vegna uppsetningu I.O
Verkun:
Lídókainhýdróklóríð er staðdeyfilyf í flokki amíða. Verkun þess hefst fljótt og verkunarlengd er í meðallagi löng. Þetta er háð þeim styrk sem er notaður, skammti og hvaða taugar skal deyfa. Verkun 2% lausnar endist í allt að 5 klst. þegar það er gefið til leiðsludeyfingar á útlægum taugum. Þegar 1% lausn er notuð er verkun á hreyfitaugaþræði minni og verkunartíminn er styttri. Upphaf verkunar og verkunarlengd er háð skammtinum og íkomustaðnum. Lídókaín veldur, tímabundinni hömlun á útbreiðslu taugaboða eftir taugaþráðum með því að koma í veg fyrir innflæði natríumjóna gegnum himnur taugafrumna. Staðdeyfilyf í flokki amíða eru talin virka á natríumg0ng í himnum taugafrumna. Staðdeyfilyf geta einnig haft svipuð áhrif á aðrar næmar frumuhimnur í heila og hjartavöðva. Ef mikið magn staðdeyfilyfs berst hratt út í blóðrásina koma fram einkenni ofskömmtunar, aðallega frá miðtaugakerfinu og frá hjarta og æðakerfinu. Einkenni eiturverkana á miðtaugakerfi koma fram viðlægri blóðþéttni og koma venjulega fram á undan eitrunareinkennum frá hjarta og æðakerfinu. Bein áhrif staðdeyfilyfja á hjarta eru meðal annars minnkaður leiðnihraði, minnkaður samdráttarkraftur og hugsanlega hjartastopp.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir staðdeyfilyfjum í flokki amíða eða einhverju hjálparefnanna. Ofnæmi fyrir metýl- og/eða própýlparahýdróbensóati (metýl/própýlarabeni) eða umbrotsefni þeirra, para-amínó-bensósýru (para amino benzoic acid (PABA)). Forðast skal að nota lyfið handa sjúklingum sem hafa ofnæmi fyrir staðdeyfilyfjum sem innihalda estera eða umbrotsefni þeirra PABA.
Aukaverkanir:
Mjög algengar (>1/10): Lágþrýstingur.
Algengar (>1/100 til <1/10): Hægur hjarsláttur, Húðskynstruflanir, sundl, uppköst, háþrýstingur.
Sjaldgæfar (>1/1.000 til <1/100): Vísbendingar og einkenni um eiturverkanir á miðtaugakerfi (krampar, húðskynstruflanir í kringum munn, tilfinningadoði í tungunni, ofurnæm heyrn, sjóntruflanir, skjálfti, sælutilfinning, meðvitundarleysi, suð fyrir eyrun, tormæli, bæling á miðtaugakerfi).
Mjög sjaldgæfar (>1/10.000 til <1/1.000): Hjartastopp, hjartsláttarórlega, taugakvilli, áverkar á útlægum taugum, skúmbólga, tvísýni, ofnæmisviðbrögð, bráðaofnæmi, ofnæmislost.
Skammtar
Munið að fylla slönguna (c.a. 1ml af Xylocain) áður en byrjað er.
Fullorðnir: Gefið um 40 mg á 120 sek, leyfið lyfinu að virka í beinmergnum í 60 sek. Flushið með 5-10 ml af NaCl, gefið aftur 20 mg á 60 sek. Endurtakið eftir þörfum.
Börn:
Upphafsskammtur 0,5 mg/kg, ekki meira en 40 mg, gefið á 120 sek. Leyfið lyfinu að virka í beinmergnum í 60 sek. Flushið með 2-5 mg af NaCl, gefið helming af upphafsskammti aftur, dælið inn á 60 sek. Endurtakið eftir þörfum.