Sjúkrabíll

Ventolin

Ventolin®
Innúðalyf, gefið með friðarpípu 1 mg/mL, 2,5 mg í lykkju.
Notkun:
Sjúkdómar sem valda berkjuþrengingu, svo sem astmi (asthma bronchiale) og langvinn berkjubólga (brhonchitis chronica) með eða án lungnaþembu (emphysema). Innúðalyf gefið með CPAP er ætlað til notkunar við alvarleg astmatilfelli og aðra sjúkdóma, þar sem um alvarlegan berkjusamdrátt er að ræða.
Verkun:
Lyfið örvar beta-2 viðtæki sérhæft og veldur þannig berkjuvíkkun.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu. Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með thyretoxicosis, alvarlega hjartajúkdóma eða hjartsláttartruflanir. Lyfið getur valdið tímabundinni hækkun blóðsykurs. Lyfið ætti ekki að nota á meðgöngutíma nema væntanlegt gagn fyrir móðurina sé talið meira en hugsanleg hætta fyrir fóstrið. Lyfið skilst að líkindum út í móðurmjólk, en ekki er vitað, hvort það kann að hafa skaðleg áhrif á barnið. Lyfið ætti því ekki að gefa mjólkandi konum nema brýn ástæða sé fyrir hendi.
Varúð:
Gæta þarf sérstakrar varúðar hjá sjúklingum, sem fengið hafa stóra skammta af öðrum adrenvirkum lyfjum. Þar sem dæmi eru um lungnabjúg hjá mæðrum við eða eftir notkun beta-2 agónista vegna yfirvofandi fyrirburafæðingar, ber að fylgjast vel með vökvajafnvægi og hjarta- og lungnastarfsemi.
Aukaverkanir:
Skjálfti. Æðaútvíkkun getur leitt til hraðari hjartsláttar og háir skammtar geta valdið höfuðverk. Hjartsláttartruflanir. Spenna. Ofnæmi. Eftir gjöf lyfsins í formi innúðarlyfs gefnu með öndunarvél getur orðið óvæntur berkjusamdráttur. Meðferð með beta-2 agónistum getur valdið alvarlegum kalíumbresti. Eins og hjá öðrum beta-2 agónistum hefur ofvirkni hjá börnum einstaka sinnum komið fram. Ofsakláði og útbrot geta komið fram.
Skammtar
Fullorðnir: Skammtastærðir eru einstaklingsbundnar.
Innúðalyf, gefið með friðarpípu: 2,5-10 mg gefið í friðarpípu. Þennan skammt má gefa allt að fjórum sinnum á dag. Við meðhöndlun í heimahúsum á einstakur skammtur að jafnaði ekki að fara yfir 2,5 mg. Yfirleitt þarf ekki að þynna lyfið fyrir notkun en sé þess óskað má þynna það með 2-3 ml saltvatns.
Börn:
Innúðalyf, gefið með friðarpípu: 0,1-0,15 mg/kg líkamsþyngdar. Þennan skammt má gefa allt að fjórum sinnum á dag. Skammtur skal þó ekki fara yfir 5 mg á sólahring.
Styrkleikana 1 mg/ml og 2 mg/ml þarf yfirleitt ekki að þynna nema óskað sé eftir því að gefa lyfið á lengri tíma en 10 mínútum. Auka má rúmmál þynningarvökva, sé óskað eftir meiri raka.