Sjúkrabíll

Transexamsýra

Cyklokapron® (TXA)
Stungulyf, 100 mg/mL, 500 mg í ampullu.
Notkun
  1. Innvortis blæðingar vegna áverka.
  2. Útvortis blæðingar vegna áverka.
  3. Asatíðir.
  4. Svæsnar blóðnasir.
Verkun:
Cyklokapron inniheldur transexamsýru sem hefur hamlandi verkun á virkjun plasminogens, það er að segja á umbreytingu plasminogens í plasmin, í fibrinleysandi kerfinu. Transexamsýra er notuð við fibrinleysandi blæðingum, sem geta komið fyrir við ýmsar klínískar aðstæður, þar sem virkjunarferlið hefur verið örvað.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir transexamsýru. Virkur blóðrekssjúkdómur, eins og segarek í djúpum bláæðum, lungnasegarek og segamyndun í heila, Innanskúmsblæðing, Skert nýrnastarfsemi, Saga um krampa.
Aukaverkanir:
Skammtaháð óþægindi frá meltingarvegi eru algengasta aukaverkunin sem greint er frá, en óþægindin eru yfirleitt væg og tímabundin. Greint hefur verið frá tilvikum krampa í tengslum við meðferð með transexamsýru. Í tengslum við hjartaskurðaðgerðir áttu flest tilvikin sér stað við inndælingu transexamsýru í bláæð í stórum skömmtum.
Skammtar
Fullorðnir:
  1. Við óstöðvandi blæðingum, innvortis og útvortis: 1000 mg i.v á 10 mín, er ráðlagður upphafsskammtur.
  2. Asatíðir, 1000 mg i.v á 10 mín
  3. Við svæsnum blóðnösum er 1000 mg i.v. á 10 mín
Við nefblæðingum er tróð oft vætt með lyfinu og sett í báðar nasir.
Börn:
15 mg/kg i.v. gefið á 10 mín