Tavegyl
Tavegyl® / Klemastín
Stungulyf, 1 mg/mL, 2 mg í amp.
Stungulyf, 1 mg/mL, 2 mg í amp.
Notkun:
Ofnæmi, bráðaofnæmi, ofnæmislost.
Verkun:
Tavegyl er H1-viðtaka blokki sem tilheyrir flokki benzhýdrýletera. Tavegyl blokkar sérhæft histamínviðtaka af H1-gerð og dregur úr gegndræpi háræða. Lyfið hefur sterka andhistamínverkun og hitalækkandi áhrif.

Frábendingar:
Ofnæmi fyrir virka efninu, öðrum andhistamínum með svipaða efnafræðilega byggingu eða einhverju hjálparefnanna.

Varúð:
Vegna kröftugra andkólínvirkra áhrifa lyfsins skal gæta varúðar hjá sjúklingum með þrönghornsgláku, magasár eða þrengslum (stenosing peptic ulcer), portvarðar- og skeifugarnarteppu, stækkaðan blöðruhálskirtil með þvagtregðu og teppu í blöðruhálsi. Gæta skal varúðar við notkun lyfsins hjá sjúklingum með kæfisvefn og vöðvaslenfár. Sjúlingar með porfýríu eiga ekki að nota lyfið. Engin reynsla er af meðferð hjá börnum undir 1 árs aldri og á því ekki að nota lyfið.
Inniheldur laktósa: Sjúklingar með galaktósaóþol, laktasaskort eða vanfrásog glúkósa-galaktósa, sem eru mjög sjaldgæfir arfgengir kvillar, skulu ekki nota lyfið.
Eykur slævandi áhrif kvíðastillandi lyfja, sefandi lyfja, svefnlyfja og alkóhóls. Getur aukið eituráhrif mónóamínóoxídasahemla (MAO-hemla) á hjarta. Eykur andkólínvirk áhrif hringlaga þunglyndislyfja og dregur úr áhrifum kólínesterasahemla.
ATH!! Tavegyl hefur mikil áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla.

Aukaverkanir:
Búast má við að um 15% meðhöndlaðra sjúklinga finni fyrir aukaverkunum. Algengustu aukaverkanirnar eru þreyta og syfja. Venjulega dregur úr aukaverkunum eftir nokkurra daga meðferð.

Ofskömmtun:
Áhrif ofskömmtunar með andhistamínum geta verið allt frá örvun til slævingar miðtaugakerfisins. Andkólínvirk áhrif eins og munnþurrkur, sjáaldursstækkun, hiti og roði ásamt viðbrögðum frá meltingarvegi geta einnig komið fyrir.

Skammtar
Fullorðnir: 2 mg i.v / i.m.
Fullorðnir: 2 mg i.v / i.m.
Börn:
0,05 mg/kg fyrir þá sem eru undir 30kg
0,05 mg/kg fyrir þá sem eru undir 30kg