Rocephalin
Rocephalin® / Ceftraxón
Stungulyf, 1g í hverju hettuglasi, leysist upp í 10 mL sæfðu vatni.

Notkun:
Rocephalin er cefalóspórínlyf. Þau eru notuð gegn ýmis konar alvarlegum bakteríusýkingum sem önnur lyf vinna ekki á. Notað gegn heilahimnubólgu.

Verkun:
Ceftríaxón er langverkandi, breiðvirkt cefalónsporín til innspýtingar. Bakteríueyðandi áhrif lyfsins stafa af hindrun á myndun bakteríuveggjarins. Ceftríaxón er stöðugt gegn flestum b-laktamösum, bæði penicillinösum og cefalósporínösum.
Ceftríaxón sýnir in vitro virkni gegn mörgum Gram-jákvæðum og Gram-neikvæðum bakteríum.

Frábendingar:
Ofnæmi fyrir cefalóspórínsamböndum. Varasamt er að gefa lyfið sjúklingum, sem hafa sögu um bráðaofnæmi gegn penicillínsamböndum.

Aukaverkanir:
Ofnæmisviðbrögð geta komið fyrir, allt frá útbrotum upp í ofnæmislost. Óþægindi frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og uppköst. Eósínfíklafjöld (eosinophilia), blóðflagnafæð, hvítfrumnafæð og rauðalosblóðleysi (haemolytic anaemia) hafa komið fyrir; enn fremur hækkun á lifraenzýmum. Líkur á sveppasýkingum aukast meðan á töku lyfsins stendur.

Skammtar:
Fullorðnir: 1-2 g i.v/i.m á c.a. 2 mín. Ef lifrar- og nýrnabilun er til staðar, þarf að minnka skammta.

Börn:
20-80 mg/kg (50-100 mg/kg) líkamsþunga á dag, sem gefið er í einum eða tveimur skömmtum.
Börn eldri en 12 ára: Sömu skammtar og handa fullorðnum.