Sjúkrabíll

Penthrox

Penthrox® Methoxýflúrani 99,9%
Innöndunargufa, gefið með innöndunartæki 3 mL
Notkun
Verkir. Einkum verkir eftir áverka eða stoðkerfisverkir.
Verkun:
Verkjalyf til innöndunar í gegnum meðfylgjandi “flautu”. Lyfið kemur í 3 ml flöskum og er því hellt í flautuna rétt fyrir notkun. Sjá leiðbeiningar um notkun hér.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir svæfingalyfjum. Saga um illkynja háhita (MH = malignant hyperthermia) í fjölskyldu sjúklings. Minnkuð meðvitund eða ruglástand. Meðgöngueitrun eða fæðingakrampi (Pre-/eclampsia). Verulega skert starfsemi nýrna eða lifrar. Alvarlegur hjartasjúkdómur eða lungnasjúkdómur. Börn < 1 árs. Samhliða notkun tetracyclin lyfja (t.d. doxycycline). Varlega í öldruðum og lágþrýstum sjúklingum.
Varúð:
Sami sjúkraflutningamaður skal ekki gefa fleiri en 2 skammta af Penthrox® á einum sólarhring. Ekki er mælt með súrefnisgjöf í gegnum flautuna en það eykur magn lyfsins í umhverfinu. Gefa má súrefni samtímis um nef. Ekki skal gefa sjúklingum Penthrox® tvo daga í röð og ekki meira en 15 mL á viku.
Aukaverkanir:
Slæving / minnkuð meðvitund. Höfuðverkur og svimi. Hósti. Ógleði. Lækkun blóðþrýstings og sjaldnar hægataktur geta komið fram. Nýrnaskaði við endurtekna háa skammta.
Skammtar
3mL INH má endurtaka 1x e 20 mín. Mest 6mL (2 skammtar).

Við innöndun lyfsins kemur verkun eftir 6-10 innandanir, og einn skammtur getur dugað í 25-30 mín við stöðuga notkun (lengur ef notað með hléum). Sjúklingur skal hvattur til þess að nota lyfið aðeins eins og þarf (PN) frekar en stöðugt.
Börn 1-12 ára:
Leitið ráðgjafar læknis áður en lyfið er gefið börnum.
3mL INH (aðeins 1 skammtur)
🚑 Klíniskar leiðbeiningar bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa