Sjúkrabíll

Haldol

Haldol®
Stungulyf, 5 mg/mL
Notkun
  • Geðklofi.
  • Aðsóknarástand.
  • Geðhæðar- og vefræn geðrof.
  • Skammtímameðferð við persónuleikaröskun með áberandi geðrofseinkennum.
  • Ruglkennt ástand hjá öldruðum
  • Uppköst, t.d. í tengslum við geislunarveiki.
Verkun:
Haldol (halperidol) er lágskammta geðrofslyf sem tilheyrir bútýrófenonflokknum. Í lyfjafræðilegum rannsóknum hefur verið sýnt fram á að haloperidol hefur sams konar áhrif á miðtaugakerfið og clorpromazin og aðrar afleiður fentiazins sem hafa dopaminblokkandi eiginleika nema hvað þessi áhrif eru yfirleitt mun meiri hvað haloperidol varðar. Hrein svæfandi áhrif eru þó minni en af völdum clorpromazins. Þrátt fyrir þetta er þo fyrir hendi hætta á auknum áhrifum sterkra verkjalyfja. Haloperidol hefur öflug uppsöluhemjandi áhrif. Haloperidol hefur sem næst engin áhrif á sjálfvirka taugakerfið og í venjulegum skömmtum hefur það hvorki andadrenvirk né andcolinvirk áhrif. Haloperidol hefur engin andhistamin áhrif en það hefur tiltölulega kröftug papaverinlík áhrif á slétta vöðva. Ekki hefur verið greint frá neinum ofnæmis-viðbrögðum. Sjúklingar finna ekki fyrir slævingu, sem eykur möguleika á sállækningu og starfsendurhæfingu.
Frábendingar:
Þekkt ofnæmi fyrir haloperidoli eða einhverju hjálparefnanna. Ofskömmtun barbiturlyfja, ópíata eða áfengis. Parkinsonsveiki. Þekkt lenging á QT-bili (QTc yfir 450 msek. hjá körlum og 470 msek. hjá konum). Meðfætt lengt QT-heilkenni. Nýlegt, brátt hjartadrep. Vanmeðhöndluð hjartabilun. Ómeðhöndlaður kalíumskortur í blóði. Hjartsláttartruflanir meðhöndlaðar með lyfjum við hjartsláttartruflunum úr flokki IA og III. Samhliða notkun lyfja sem lengja QT-bil svo sem annarra geðrofslyfja, lyfja við hjartsláttartruflunum úr flokki IA og III, moxifloxacins, erytromycins, metadons, meflokins, þríhringlaga þunglyndislyfja, litíums og cisaprids.
Aukaverkanir:
Utanstrýtueinkenni (ósjálfráðar hreyfingar, óeirð, stífleiki og hreyfingartregða) koma fyrir hjá 40-76% sjúklinga sem fá meðferð með lyfinu. Haldol getur valdið skammtaháðri aukningu á plasmaþéttni prolactins.
Algengar aukaverkanir (> 1/100)
Almennar: Höfuðverkur, sundl.
Taugakerfi: Utanstrýtueinkenni (bráð vöðvaspennutruflun, Parkinsonsheilkenni, hvíldaróþol). Síðkomin hreyfitruflun (við langtímameðferð).
Geðræn vandamál: Þunglyndi. Slæving.
Skammtar
  1. Bráður hræringarórói hjá fullorðnum: 5mg i.m. Ef nauðsyn krefur má endurtaka skammtinn eftir 1 klst. þar til náðst hefur stjórn á einkennum. Hjá meirihluta sjúklinga eru skammtar allt að 15 mg/sólahring fullnægjandi. Hámarksskammtur er 20 mg/sólahring. Meðferð með Haldol stungulyfi verður að stöðva eins fljótt og klínísk svörun segir til um.