Sjúkrabíll

Glúkósa 50%

Glúkósa 50% Stungulyf i.v, 50 mL af 500 mg/mL.
Notkun
Brátt blóðsykurfall (hypoglycemia) af öllum ástæðum (insulin, oral sykursýkislyf, ethanol o.fl.). Til greiningar á hypoglycaemiu hjá sjúklingum með minnkaða meðvitund.
Verkun:
Hækkar glúkósa í blóði.
Frábendingar:
Engar í bráðatilvikum.
Aukaverkanir:
Vefjadrep ef gefið utan æðar.
Skammtar
Fullorðnir: 30-50 mL (15-25 g) i.v
Börn:
100-250 mg/kg i.v. Þynnið með NaCl niður í 10-25%.
10ml af 50% glúkosa á móti 10ml NaCl gefur 20ml af 25% glúkósa.
4ml af 50% glúkósa á móti 16ml af NaCl gefur20ml af 10% glúkósa.