Sjúkrabíll

Atosil

Prometasin (Phenergan)
Atosil®
Stungulyf, 25mg/mL, 50mg í amp.
Notkun:
Ógleði og uppköst. Fyrirbyggjandi gegn ferðaveiki. Lyfið hefur umtalsverða róandi og svæfandi verkun (oft notað í lyfjaforgjöf fyrir skurðaðgerðir) og áhrif á kvíða og taugaspennu.
Verkun:
Prómetazín er fentíazínafleiða og er andhistamínlyf, sem byggist first og fremst á H1 -viðtaka blokkun. Lyfið hefur einnig róandi og andkólínvirk áhrif. Lyfið frásogast vel, bæði eftir inntöku og gjöf í vöðva. Helmingunartími er u.þ.b. 13 klst. Dreifingarrúmmál er 13 l/kg. Próteinbinding er 80-90%. Verkunarlengd er um 16-18 klst. Lyfið útskilts með þvagi og galli.
Frábendingar:
Ofnæmi, aðrar ekki þekktar. Ekki ráðlagt í ofnæmislosti.
Aukaverkanir:
Vara ber stjórnendur bifreiða og vélknúinna tækja við slævandi áhrifum lyfsins.
Algengasta aukaverkun syfja (5-10%)
Algengar(>1%):
Almennar: Syfja.
Annað: Munnþurkur.
Sjaldgæfar (0.1-1%):
Meltingarvegur: Hægðartregða.
Þvagfæri: Þvagtregða.
Augu: Minnkað tárarennsli. Sjónstillingartruflun.
Skammtar:
Fullorðnir:
12,5-50 mg p.o, p.r, i.m, i.v
Börn:
Á ekki við