Sjúkrabíll

Adenosine

Adenocor® Stungulyf iv, 3 mg/mL, 6mg í amp.
Notkun:
  1. Meðferð við paraoxysmal Supraventicular Tachycardiu (PSVT) og öðrum grannkomplexa tachycardium (m.a. WPW), þó ekki við AFib eða AFlutt. Má nota til meðferðar á gleiðkomplexa tachycardiu f það er staðfest PSVT.
  2. Til aðstoðar við greiningu á grannkomplexa tachycardiu.
Verkun:
Hjartsláttaróreglulyf. Class IV antiarrythmic, hægir á / stöðvar leiðni gegnum AV-hnút og brýtur þannig upp hringrás sem myndast við SVT.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu. Bradycardia eða I-II° AV-blokk.
Aukaverkanir:
Getur valdið tímabundnum óþægindum fyrir brjósti, hjartsláttaróþægindum, "flushing", höfuðverk, ógleði og berkjusamdrætti (ath. við asthma).
Getur valdið tímabundinni hjartsláttaróreglu svo sem 2.-3. gráðu AV - blokk, asystole, sinus bradycardiu, PAC eða PVC.
Skammtar:
6mg iv bolus gefið hratt í miðlæga nál (olnbogabót), ýtt á eftir hratt með 20 mL NaCl flush. Má endurtaka eftir 1-2 mín með 0,2 mg/kg (max. 12 mg). Mjög stutt verkun (hefst e. <20 sek og endist í 20-30 sek).